Tíðindi

Einkavæða fjallstinda Alpanna

  12/06/2011desember 4th, 2014No Comments

Verið getur að göngufólk í austurrísku Ölpunum gæti í framtíðinni þurft að fá leyfi hjá eigandanum til að ganga upp á tvo tinda sem Alpana prýða. Það er nefninlega verið að selja tvo fjallstinda í Austurríki sem báðir eru vinsælir meðal útivistarfólks.

Ekki aðeins er nógu undarlegt að verið sé að einkavæða tvo fjallstoppa heldur þykir uppsett verð ekki ýkja hátt en fyrir báða toppana saman er farið fram á 19,1 milljón króna miðað við gengi dagsins.

Þarna er um að ræða toppa fjallanna Groβe Kinigat og Rosskopf sem bæði eru reglulega á kortum göngu- og fjallaklifurfólks í Austurríki.

Ekki fylgir sögunni hvers vegna austurríska ríkið er að selja þessa ákveðnu fjallstoppa en áhuginn er greinilega til staðar því ein 20 tilboð hafa þegar borist samkvæmt austurrískum fjölmiðlum.

Standi hugur til að gera tilboð þarf að skjóta einu út fyrir áttunda júlí hér.