Þrjátíu þúsund eitt hundrað og níu krónur. Það er kostnaðurinn við að fljúga með flugfélaginu TAP frá Berlín gegnum Lissabon og þaðan til Dakar í Senegal og sömu leið til baka í júní og júlí.

Sérdeilis flottur prís á fjórtán stunda flugi fram og aftur ef þú spyrð okkur hér. Meira að segja hægt að stoppa í Lissabon í nokkrar stundir og taka inn smá fado 🙂

Dakar í Senegal kannski ekki á topp tíu listanum yfir áhugaverða áfangastaði en það gæti breyst ef þú kíkir á þetta myndband 🙂  Plús að við komumst til Berlínar vel niður undir tíu þúsund krónum aðra leiðina þegar þetta er skrifað.