Alltaf skemmtilegt að rekast á tilboð á flugi og eða ferðapökkum. En hjá Icelandair eru tilboðin kannski helst til úrelt eða framúrstefnuleg.

Einhver kynni að halda að fyrirtæki sem hagnast hefur um tugmilljarða á undanförnum árum hefði nú efni á að ráða þokkalega meðvitað og vakandi fólk í vinnu.sea

Ekki er það þó raunin ef marka má tilboð eitt á forsíðu vefs flugfélagsins. Það tilboð hljómar ekkert hræðilega eða fjögurra daga pakki til Seattle í Bandaríkjunum frá 117.900 krónur per haus eins og sjá má hér til hliðar. Reyndar vel hægt að græja slíka ferð á mun lægra verði með því að gera hlutina sjálf/-ur en það önnur saga.

Öllu lakara fyrir áhugasama sem vilja skoða þetta tilboð nánar að þessi pakki er löngu útrunninn. Tilboð þetta gilti til 31. mars 2016. Sem samkvæmt dagatali nútímafólks var fyrir tveimur vikum!!!

Eða hvað?

tibb

Hér finnast tvær dagsetningar. Annars vegar gildir tilboðið til 31. mars 2016 eða það gildir til 31. mars 2015???

Við rekumst á annað  „tilboð“ á forsíðu Icelandair. Að þessu sinni þriggja daga pakki til Minneapolis sem löngum heillaði marga þegar Icelandair einokaði flug til og frá landinu og aðeins örfáir áfangastaðir í boði.

Hér flug plús gisting í fjórar nætur allt niður i 85.900 krónur per haus sem er allbærilegt þegar haft er í huga að flugið eitt og sér kostar yfirleitt ekki undir 60 þúsund krónum með Icelandair.

En hér aftur er merkilegt babb í bát eins og sjá má á meðfylgjandi skjáskoti:

minniHvers vegna að auglýsa í dag tilboð sem virðist eiga við um næsta ár? Eða er hægt að bóka þetta tilboð í heilt ár frá 27. apríl? Einhver hér ekki að vinna vinnuna sína. Ekkert ferðatilboð á að fara milli mála.

Nema trixið sé einmitt að vekja spurningar, fá fólk til að hringja í þjónustuver og jafnvel bóka þar og greiða aukalega þrjú þúsund krónur fyrir það?