Í Bandaríkjunum eru aðeins um 70 þúsund bílaleigur í heildina og hætt við að það sé erfiður bransi að brjótast inn í með nýtt fyrirtæki. En ekki þegar viðskiptavinurinn er raunverulega í fyrsta sæti og framkoma við hann fáguð og flott.

Framtíðin í bílaleigum? Kannski það

Framtíðin í bílaleigum? Kannski það

Tæplega tveggja ára gömul bílaleiga þar í landi er að vekja mikla eftirtekt fyrir framúrskarandi þjónustu á öllum sviðum og það segir sitt um þjónustu hinna reglubundinna bílaleiga.

Silvercar heitir sú nýja og hvað gerir hana svo merkilegri en annað þarna úti? Allir bílaleigubílarnir eru eins; glænýir og flottir Audi A4 með öllum hugsanlegum tæknibúnaði. Enginn aukakostnaður fyrir GPS búnað, enginn aukakostnaður fyrir lungnamjúk leðursæti, enginn aukakostnaður fyrir aðstoð á vegum úti, enginn aukakostnaður fyrir WiFi aðgang í bílnum og til að gera langa sögu stutta enginn aukakostnaður fyrir neitt.

Sem eru aldeilis fínar fréttir fyrir viðskiptavini sem vanir eru orðnir fyrirtækjum sem heimta gjald fyrir minnsta prump.

En rúsínan í þessum pylsuenda er þó líkast til að þrátt fyrir stórfína bíla og aukaþjónustu út í hið óendanlega kostar ekki mikið meira að leigja hjá Silvercar en hefðbundnum bílaleigum.

Fyrir okkur klakabúa er Silvercar aðeins í boði á einum stað sem flogið er beint héðan og það er í Denver í Kolóradó. En þeir sem ætla þangað gætu gert vitlausari hluti en prófa þjónustu Silvercar. Sannarlega kominn tími á fyrirtæki sem raunverulega setur viðskiptavininn í fyrsta sætið.

Heimasíðan hér.