Fræðingar við Háskólann í Barcelóna telja líklegt að fasteignaverð á vinsælum ferðamannasvæðum Spánar LÆKKI um allt að 20 prósent á næstu tólf mánuðum. Sé það rétt er þetta tíminn til að draga seðlana undan koddanum.

Mörgum dreymir um að eiga heimili undir sólinni á Spáni. Tækifærið verður líklega aldrei betra.
Spánn ekki farið varhluta a Kófinu frekar en aðrar þjóðir. Þvert á móti eiginlega því fáar þjóðir hafa orðið jafn hart úti og Spánverjar. Túrismi er í mýflugumynd í landi þar sem 13-18 prósent þjóðartekna kemur rakleitt frá erlendu ferðafólki í einni mynd eða annarri. Í ofanálag eiga hundruð þúsunda Breta eignir í landinu en í kjölfar Brexit um áramótin gæti orðið verulega flókið að eiga eignir í ESB. Mögulega of flókið fyrir Jón og Gullu ellilífeyrisþega í Portsmouth.
Þetta merkir, að mati fræðinga Universidad de Barcelona að sterkar líkur séu til að eignaverð á vinsælum ferðamannastöðum landsins lækki um allt að 20 prósent á næstu tólf mánuðum. Þarf sennilega ekki fræðinga til því það segir sig sjálft að fáir hafa efni á eignum erlendis sem ekki skila einhverjum tekjum. Rannsóknir lengi sýnt fram á að stærsti hluti eigna til tímabundinnar leigu á Spáni eru í eigu útlendinga. Enn færri hafa áhuga að punga út í eign erlendis sem erfitt eða vonlaust er að njóta eða nota reglulega.

Húsnæðisþróun á Spáni síðustu árin.
Standist spá fræðinganna eru næstu mánuðir kjörtími til fjárfestingar. Tuttugu prósenta verðlækkun þurrkar í raun út alla meðaltalshækkun á fasteignum í landinu frá árinu 2010 og gott betur en það.
Sem fyrr ágætt að hafa bak eyra að „sérfræðingar” vita stundum ekkert í sinn haus og því ekkert gefið í þessu (Davíð Oddsson sem seðlabankastjóri einhver.)
En meira að segja fávíst fólkið á Fararheill telur æði sterkar líkur til að húsnæðisbólan á Spáni sé aftur að fara að springa. Efnahagskreppur valda gjarnan slíkum sprengingum og ekkert er að fara að lagast á heimsvísu fyrr en eftir ár í fyrsta lagi og þá aðeins ef bóluefni finnst strax um áramótin. Á þeim tíma verða mjög margir þarna úti orðir skítblankir og láta pleisin fyrir slikk.







