Þau ykkar sem erindi eiga til Oslóar í Noregi næstu mánuðina gætu hagnast á því að kíkja sem snöggvast á vef flugfélagsins SAS.

Sakar ekki að skoða vef SAS fyrir þá sem langar til Osló næstu misserin. Skjámynd
Norræna flugfélagið er að skjóta út tilboðsverði á flugi til ýmissa áfangastaða sinna og þar á meðal á milli Keflavíkur og norsku höfuðborgarinnar. Lægsta fargjald rétt rúmar tólf þúsund krónur aðra leið og hér rétt að muna að ekkert kostar aukalega fyrir farangur með SAS.
Tilboðið rennur út á miðnætti svo tíminn er skammur en sé fólk með áætlanir á prjónum er óvitlaust að fletta nokkrum síðum og kanna málið. Auðvitað er Norwegian oftast nær að bjóða lægra verð á þessari sömu flugleið en á móti kemur að þar er greitt sérstaklega fyrir farangur og ferðin gæti því verið kostnaðarsamari með lággjaldaflugfélaginu.







