Sé hungur í mallakút í London og veskið troðnara af seðlum en tölu verður á fest er óvitlaust að skella sér inn í verslun Selfridges í miðborg London og panta sér súrdeigssamloku með Wagyu-kjöti. Slíkt er stundum betur þekkt sem Kobe-kjöt.

Allra dýrasti veitingastaður Japan er Beige í Tókýó

Allra dýrasti veitingastaður Japan er Beige í Tókýó

Þrátt fyrir súrdeigið er næsta víst að sú er lostæti hið mesta allavega ef miða á við verðið. Slík samloka kostar þig 28 þúsund krónur en ábyggilega hægt að fá hana á raðgreiðslum.

Eflaust er að bera í bakkafullan lækinn að birta grein um dýra veitingastaði erlendis á sama tíma og íslenska krónan sekkur dýpra og dýpra í forarsvað gagnvart erlendum gjaldmiðlum.

Engu að síður tilefni því veitingahúsavefurinn Zagat hefur birt árlega skrá sína yfir dýrustu borgir heims hvað mat snertir og þarf ekki að segja Íslendingum að London sé þar fremst í flokki. Hér eingöngu um betri veitingastaði að ræða.

Meðalverð á mat fyrir einn utan víns í London litlar 9.800 krónur samkvæmt útreikningum Zagat þessa dagana. Rétt þar á eftir punga menn mest út fyrir málsverðinn í París, Frakklandi og Tókíó, Japan þar sem magafyllir kostar 9.000 krónur að meðaltali.

Hvað þetta varðar eru Bandaríkin með áberandi betri kost en Evrópa. Hin annars tiltölulega dýra New York er hræbilleg í samanburðinum. Kostar góður málsverður þar aðeins 4.500 krónur að meðaltali. Ekki er verra að setjast til borðs í Los Angeles þar sem málsverðurinn kostar aðeins rétt rúmar 4.000 krónur.

Hér eru fimm fokdýrir veitingastaðir sem eiga það sammerkt ásamt fyrsta flokks mat að eiga enga samleið með íslensku veski. Hafðu í huga að verðin miðast við eina manneskju.

♥  Gordon Ramsey – Geysivinsæll veitingastaður í miðborg London og þarf að brjóta nokkra handleggi og fætur til að komast þar að fyrir hinn venjulega mann. Gangi það eftir er ódýrasti málsverðurinn í boði á 32 þúsund krónur og á þá eftir að reikna 12 prósent þóknun til þjónanna auk allra drykkja. Ramsey rekur aðra veitingastaði víða í heiminum en þeir eru töluvert ódýrari ef hann sjálfur ekki að elda þar.

♥  Beige – Þarf einhver að velkjast í vafa um að matur á veitingastað á efstu hæð háhýsis með útsýni yfir Tókyó sé í dýrari kantinum? Bættu svo við að staðurinn er rekinn í sameiningu af hinum fræga franska Alain Ducasse og Chanel snyrtivörusamsteypunni. Meðalverðin hér kringum 27 þúsund krónur.

♥  Le Pre Catalan – Dýrasti veitingastaður Parísar er ekki langt undan í verðum en þó er sá munur á að fyrir 32 þúsund krónur færðu fimm réttað veisluborð. Sérstök tilboð á sumrin þegar vinsælir þriggja rétta málsverðið detta alla leið niður í 24 þúsund krónur.

♥  Misoguigawa – Hverjum hefði dottið í hug að sniðugt væri að borða franskan mat með kínverskum prjónum? Þeim á Misogui sem eru reyndar þrír staðir í Osaka, Tókyó og Kobe í Japan. Meðalrétturinn á 26 þúsund krónur en fyrir 38 þúsund krónur má fá lúxusútgáfu af Wagyu kjötrétti en þó aðeins með fimm daga fyrirvara.

♥  Masa – New York hlaut að komast hér að enda háklassa borg og með sæg af dýrum veitingastöðum innan borgarmarkanna. Merkilegt samt að þetta sé sá dýrasti í borginni enda eingöngu sushi réttir hér til sölu. Slumma af þeim kostar viðskiptavininn um 54 þúsund krónur.

Sé áhugi á að vita um fleiri slíka staði er mál að heimsækja Zagat hér.