Bandaríkjaþing hefur samþykkt að létta ferðatakmörkunum bandarískra þegna til Kúbu og er nú stórfjölskyldum heimilt að heimsækja ættingja sína á eyjunni en áður hefur aðeins nærfjölskyldan getað sótt um slík ferðaleyfi.

Óhætt er að reikna með að hlutirnir á Kúbu taki örum breytingum á næstunni

Óhætt er að reikna með að hlutirnir á Kúbu taki örum breytingum á næstunni

Er frekari niðurfelling fyrirhugaðuð síðar á árinu og má því gera ráð fyrir að öllum Bandaríkjamönnum verði heimilt að heimsækja landið frá og með næsta ári. Mikill áhugi er meðal bandarískra fyrirtækja að setja upp starfsemi á Kúbu enda ferðaiðnaðurinn þar að mörgu leyti enn að slíta barnsskónum.

Þarf enginn að velkjast í vafa um að með tilkomu bandarískra ferðamanna og fyrirtækja er hætt við að stórmerkileg og einstæð menning íbúa Kúbu fari að láta á sjá með tilkomu fleiri ferðamanna svo ekki sé minnst á innflutning á nýrri bílum en þar hafa fengist lengi.

Kúba hefur verið í uppáhaldi margra Íslendinga gegnum árin enda Heimsferðir boðið ferðir þangað reglulega en nú horfir svo við að til að Frónbúar komist þangað þarf að fara gegnum Kanada eða Bretland.