Íslenski flugleitarvefurinn Dohop er aftur kominn í Meistaradeildina. Vefurinn hefur komist inn á lista þeirra átta flugleitarvéla sem bestar þykja á heimsvísu samkvæmt Óskarsverðlaunahátíð ferðabransans.

Dohop aftur í toppbaráttu eftir miðjuþóf um hríð.
Hér um að ræða World Travel Awards, WTA, en þar keppir Dohop við sjö aðrar flugleitarvélar um gullverðlaunin árið 2016. Gullið einu sinni áður lent í skaut Dohoppara en eins og Leicester City hefur þeim ekki tekist hingað til að fylgja eftir góðum árangri.
Fararheill er reyndar sammála því mati WTA að Dohop sé meðal þeirra bestu. Margt þar breyst til batnaðar síðustu mánuðina þó nokkuð vanti enn upp á. Of mikið til að Dohop sé að taka gullið á nýjan leik í þetta sinn að okkar mati. Við setjum okkar pening á Momondo hinn danska 😉
Úrslitin verða kunngjörð í næsta mánuði.







