Tíðindi

Dapurleg tilboð GB Ferða

  31/05/2010maí 17th, 2014No Comments

Ferðaskrifstofan GB Ferðir auglýsir nokkuð grimmt þessi dægrin golfferðir fyrirtækisins næsta haust. Eru þar sérstaklega auglýstar þriggja nátta ferðir til Bretlands á Donnington Valley golfhótelið og gefinn sérstakur 11 þúsund króna afsláttur ef bókað er ekki seinna en núna.

Á því er þó afskaplega lítil þörf því verð ferðaskrifstofunnar eru takmarkað samkeppnishæf samkvæmt úttekt Fararheill.is. Miðast verðin við að tveir ferðist saman sem þýðir að þriggja nátta ferð með fjórum golfhringjum og morgunverði kostar 176 þúsund með afslættinum eða 88 þúsund á manninn.

Einföld leit á heimasíðu hótelsins leiðir í ljós að hefðbundið tveggja manna herbergi í lok ágúst og byrjun september fæst á 62 þúsund. Sé miðað við verð á flugi nú 30. maí má bóka flug fram og tilbaka með annaðhvort Iceland Express eða Icelandair á 33 þúsund á þessum tíma.

Ritstjórn sendi móttöku hótelsins skeyti og forvitnaðist um tilboð fyrir tvo einstaklinga fjóra golfhringi meðan gist er á umræddum tíma og fékk þau svör að það byðist fyrir 28 þúsund krónur.

Niðurstaðan er því sú að hafi fólk nennu til að eyða eins og 20 mínútum á netinu er hægt að fá sömu ferð og GB Ferðir bjóða með afslætti á 176 þúsund alveg niður í 153 þúsund. Er reyndar morgunverður ekki innifalinn til að gæta alls hlutleysis en án efa má fá ágætan morgunverð þrjá daga fyrir 23 þúsund krónur

Miðað við hefðbundin verð GB Ferða á 199 þúsund nemur sparnaðurinn næstum 50 þúsundum króna.

Heimasíða GB Ferða.

Heimasíða Donnington Valley hótelsins.