Heimsferðir auglýsa nú fjögur forfallasæti í ellefu nátta ferð til Bodrum í Tyrklandi en flogið er út þann 8. júní 2010. Þrátt fyrir að þeir sem forfallast hafi nú þegar greitt töluverða upphæð sem ekki fæst endurgreitt er ferðaskrifstofan ekkert að slá af verðinu.
Stendur ferðin milli 8. júní og 19. júní og verður gist á Blue Bay hótelinu í Bodrum sem þykir miðlungsgott að mati ferðavefsins Travelpod en finnst hvergi á listum hótelvefsins Tripadvisor.
Prísinn er nokkuð brattur eða 169.900 krónur á mann og eins og ferðaskrifstofum er tamt er miðað við að tveir ferðist saman. Á móti kemur að allt er innifalið og því næsta óhætt að skilja velflest eftir heima nema passann.






