Við elskum þegar ferðaskrifstofur gera mistök. Og rétt í þessu var Úrval Útsýn svindlarans Pálma Haraldssonar að gera feit mistök 🙂

Ef marka má auglýsingu Úrval Útsýn er sérdeilis ódýrt að skjótast til Mallorca í byrjun næstu viku 🙂
Samkvæmt vefpósti frá ferðaskrifstofu svindlarans er nú í boði að skoppast til Cala Rajada á Mallorca með Úrval Útsýn og gista á skítsæmilegu fjögurra stjörnu hóteli með öllu inniföldu vikustund 9. til 16. ágúst fyrir svo lítið sem 59.450 krónur á mann eða 118.900 krónur samtals á tvo fullorðna!
Þetta ævintýralega gott boð og það jafnvel þó fyrirvari sé næsta lítill. Þetta er jú hótel sem kostar parið að meðaltali um 140 þúsund kall yfir viku að sumarlagi. Við erum því að fá flugið frítt miðað við tilboð ÚÚ og rúmlega það.
Ok, einhver hængur hlýtur að vera á pakkanum. Jú, fyrir utan þau mistök ÚÚ að auglýsa ferð fyrir tvo á verði fyrir einn, því lágmarksverð á þessum pakka almennt er 160 þúsund krónur á mann hjá ferðaskrifstofunni eða 320 þúsund krónur á parið, er mínusinn líka sá að hótelið þrátt fyrir sínar fjóru stjörnur fær falleinkunn meðal gesta og þykir ekki par merkilegt.
En það ekki í fyrsta sinn sem ÚÚ býður príma verð á skítahótel. Og fyrir sextíu þúsund kall er hægt að lifa á skítahóteli í vikustund án þess að taka það mikið inn á sig 🙂
PS: lögum samkvæmt ber fyrirtækjum skylda að standa við auglýsingar að fullu. Eins og sést á meðfylgjandi skjáskoti kostar ferð fyrir tvo fullorðna 9.-16. ágúst alls 118.900 krónur! Það skjáskot nægir til að annaðhvort fá ferðina á þessu verði ellegar kæra, ef ferðaskrifstofan neitar, til Neytendastofu og fá skaðabætur.
Gaman gaman og hver vill ekki Mallorca-sól á kropp áður en vetur kveður dyra 🙂







