Það sér töluvert á borginni Brighton á suðurströnd Englands. Svo mjög reyndar að tákn borgarinnar, hin fræga Brighton Pier, er ónýt að hluta.
Stór hluti vesturhluta brúarinnar frægu fór fyrir lítið í óveðri því sem gert hefur Bretum skráveifu síðustu dagana en þar eins og raunin er hinu megin hafsins í New York virðist afar lítið hugsað út í fyrirbyggjandi aðgerðir vegna veðurfars. Heilu bæjarfélögin fara undir vatn reglulega og alltaf eru stjórnvöld jafn hissa á miklum skemmdum.
Fram kemur í bæjarblaðinu Gazette að hlutar hinnar 148 ára gömlu brúar hafi verið að brotna síðustu vikurnar án þess að menn hafi fengið að gert og því hafi ekki komið á óvart að hlutar brúarinnar nú hafi fallið og fokið til sjávar. Borgarráð hyggst þó hefja endurbætur strax og færi gefst.
Allt annað sem þú þarft að vita um Brighton hér.








