Slétt ár er nú síðan Fararheill fjallaði sérstaklega um frábæra byrjun Wow Air á því herrans ári 2014. Viðskiptavinir hæstánægðir með þjónustu, topp stjörnugjöf á einkunnavefum alls staðar og hvergi féll skugga á. En ýmislegt breytist á tólf mánuðum.

Vaxtaverkir eða slæleg stjórnun? Vegur Wow Air versnandi á samfélagsmiðlum. Mynd Wow Air

Vaxtaverkir eða slæleg stjórnun? Vegur Wow Air versnandi á samfélagsmiðlum. Mynd Wow Air

Það vakti eftirtekt í febrúar/mars á síðasta ári hve viðskiptavinir voru jákvæðir út í hið nýja flugfélag. Meðaleinkunnagjöf á flugvefnum Skytrax var kringum 9,5 af 10 mögulegum, fésbókarkomment undantekningarlaust jákvæð og sömuleiðis fjölmiðlaskrif. Sem sagt hið allra besta mál enda ekki svo einfalt fyrir lítið og nýtt lággjaldaflugfélag að halda öllum góðum. Lof í lófa fyrir slíkt.

En flugrekstur er langhlaup en ekki spretthlaup og sá sem ekki heldur út kemur seint fyrstur í mark. Merkilegur munur er á umtali um Wow Air fyrstu tvo mánuði ársins 2015 og 2014. Svart og hvítt faktískt.

Fyrir það fyrsta er einkunnagjöf þeirra fáu sem tjáð hafa hug sinn á Skytrax frá áramótum öllu lægri en fyrir ári. Meðaleinkunnin nú 6,5 af 10 mögulegum eða á svipuðum slóðum og meðaleinkunn Icelandair.

En það er á vef Wow Air á fésbókinni sem manni bregður við. Nánast engin neikvæð komment fundust á vef þeirra 2014 en nú er annað uppi á teningnum eins og sjá má dæmi um hér. Töluvert er líka um óhamingju viðskiptavina á twittervef flugfélagsins. Synd.

wface3

wface4

wface5

wface6