Fáum blöðum er það að fletta að almennt eru Bretar afskaplega íhaldssöm þjóð. Það sannast enn einn ganginn í nýrri könnun þar sem í ljós kemur að stór hluti Breta saknar einskis meira en síns eigin rúms á ferðalögum.
Forvitnaðist leigumiðlunum Homeaway um það hjá breskum viðskiptavinum sínum hvers þeir söknuðu mest á ferðalögum og reyndist ákaflegur söknuður eftir gamla góða rúminu heimavið. Reyndist meiri söknuður eftir því en fjölskyldunni.
Þetta eru þeir tíu hlutir sem ferðalangarnir sakna mest samkvæmt úttekt meðal tvö þúsund ferðamanna:
- Rúmið
- Fjölskyldan
- Gæludýr
- Netaðgangur
- Daglegri rútínu
- Góðum tebolla
- Vinir
- Eigin eldhúsi
- Vatni úr krana
- Góðri sturtu






