Ætli enn finnist borgir í Evrópu þar sem þriggja rétta máltíð á betri veitingastað kostar 2.500 krónur, bjór á barnum 350 krónur og varningur í verslunum 50 prósent ódýrari að meðaltali en gerist í Reykjavik?

Ljublana á rætur langt aftur og tignarleg fjöllin í kring gefa henni sérstakan blæ sem minnir á köflum á Reykjavík. Mynd Visit Slovenia

Ljubljana á rætur langt aftur og tignarleg fjöllin í kring gefa henni sérstakan blæ sem minnir á köflum á Reykjavík. Mynd Visit Slovenia

Reyndar finnast  þær allnokkrar ennþá svona þér að segja og allar eru þær í austurhluta Evrópu. Ein þeirra er hin fallega höfuðborg Slóveníu: Ljubljana.

Sú aldrei verið á listum innlendra ferðaskrifstofa nema þá í stöku sérferðum og þá aðeins stoppað í skamman tíma.

En ólíkt Reykjavik til dæmis, en Ljubljana er einmitt líka nokkuð umkringd fjöllum eins og sú íslenska, sem má virkilega klára að skoða á einum til tveimur sólarhringum þá þarf meira til í Ljubljana.

Reyndar er fleira í Ljubljana sem vekur upp samanburð við íslensku höfuðborgina og það er skortur á háum byggingum. Hér eru alls engin háhýsi og ekki hægt að segja að mikil söknuður sé eftir slíkum byggingum heldur. Það á sér reyndar náttúrulegar ástæður. Borgin er að stórum hluta byggð á mýrlendi og því geta byggingar ekki verið of þungar eigi þær að haldast ofanjarðar.

Hér sem víðar í Evrópu er gamli miðbærinn troðinn af forvitnilegum byggingum með mikla sögu. Mynd Federico

Hér sem víðar í Evrópu er gamli miðbærinn troðinn af forvitnilegum byggingum með mikla sögu. Mynd Federico

Ljubljana er kannski ekki verslunarborg per se en úrval verslana er æði gott og hér að finna margar vinsælar verslunarkeðjur. Þá er verslunarsvæði borgarinnar lítið og auðvelt að fara um án þess að þreytast. Varningur er að lágmarki 30 prósent ódýrari en heima og oftast er munurinn meiri en það. Það merkir að hér er mun ódýrara að kaupa inn en í þeim borgum sem við sækjum oftast heim í verslunarferðum.

Við mælum heils hugar með heimsókn hingað. Engin þörf er á að hafa mikið fyrir að komast hingað. Við flugum með easyJet frá Keflavík til Ljubljana með þriggja stunda stoppi í London og sömu leið til baka fyrr í haust fyrir 38 þúsund krónur samtals á mann. Það setur engann á höfuðið.

Þaðan af síður mun gisting drepa þig fjárhagslega. Við gistum á fimm stjörnu Lev Ljubljana með morgunverði fyrir 10.170 krónur á nótt. Þú gistir ekki einu sinni í gámi á Kirkjubæjarklaustri fyrir þann pening á Íslandi. Það hótel og önnur finnur þú á hótelbókunarvef okkar hér að neðan.

Drífðu þig 🙂