B orgarbúar sjálfir yppta sennilega bara öxlum aðspurðir um bestu smáréttina í Madrid á Spáni og þykjast ekkert vita. Það helgast af því að þeir vilja sem minnst að það fréttist að Las Bravas er þar fremst meðal jafningja.

Einfaldasti matur heims getur vel bragðast sem fimm stjörnu máltíð. Það sannast á Las Bravas
Tapas er ekki síður ljúffengt í Madrid en annars staðar á Spáni en á Las Bravas er ekkert um neitt fínerí og fansíheit á brauðsneið að ræða heldur er hér í boði þjóðarréttur Madrileños: kartöflubaka.
Og eins og kartöflubaka, tortilla, hljómar eitthvað óspennandi er leyndarmálið á Las Bravas í sósunni. Sú er mikið leyndarmál en nægilega góð og sterk til að til að breyta súru hvalrengi í fimm stjörnu máltíð.
Las Bravas rak fram til ársins 2004 aðeins einn stað en rekur nú þrjá og alla á nánast sama bletti í miðborg Madrid. Þeir finnast úr fjarska enda appelsínugilt skilti staðarins áberandi og innifyrir finnast yfirleitt aðeins Spánverjar en engir útlendingar. Sem eru náttúrulega bestu meðmæli með nokkrum veitingastað hvarvetna í heiminum 🙂
Nánar hér.




