Eins og áhugamönnum ætti að vera kunnugt fór lokahóf Óskarsverðlauna ferðaiðnaðarins fram fyrr í vikunni þar sem meðal annars bar til tíðinda að Dohop var valinn besti flugleitarvefur heims. Ekki síður merkilegt að hótelleitarvefur Fararheill, HotelsCombined, vann þar gullverðlaun líka sem besti hótelleitarvefurinn og það í annað árið í röð.

Besti hótelbókunarvefur heims er sá sem Fararheill hefur boðið upp á frá upphafi.
Ólíkt mörgum öðrum aðilum sem ota sínum tota þó innihaldslítill sé höfum við vitað lengi að HotelsCombined er fremstur jafningja. Frá því Fararheill hóf starfsemi höfum við oft og ítrekað mælt með þeim hótelvef umfram aðra. Einfaldlega sökum þess að reynslan sýnir að þar sparar þú umtalsverða fjármuni umfram aðra hótelleitarvefi.
Það er auðvelt að ganga úr skugga um það með léttri prófun hér að neðan og gera svo samanburð við leitarvélar til dæmis Icelandair, Wow Air eða Dohop en öll þessi fyrirtæki nota Booking.com. Sá vefur aldrei komist svo mikið í undanúrslit á listum World Travel Awards yfir bestu hótelleitarvélarnar.







