Tíðindi

Bæði flugfélögin ódýrari til New York í sumar

  01/02/2011nóvember 21st, 2014No Comments

Ferðist tveir saman til New York í helgarferð í sumar og sé pantað núna borgar sig að fljúga með Icelandair samkvæmt úttekt Faraheill.is. Sé hins vegar fjölskylda með tvö börn á leiðinni til New York í sumar í vikuferð er vænlegra að fara með Iceland Express.

Leiðir nett úttekt í ljós undarlega misjöfn verð hjá flugfélögunum tveimur sem bæði auglýsa nú grimmt ferðir til Bandaríkjanna.

Annars vegar var kannað verð á helgarferð fyrir tvo í byrjun júní og hins vegar vikuferð fyrir fjölskyldu með tvö börn að ellefu ára aldri.

Icelandair tekur vinninginn fyrir fyrri ferðinar en þeir bjóða nú far fyrir tvo fram og til baka með sköttum þann 2.júní til 6.júní á samtals 121.720 krónur. Það besta sem Iceland Express býður þessa sömu daga er 149.200 krónur. Er það verðmunur upp á 27.480 krónur og munar um minna.

Þetta snýst við ætli fjölskyldan sér saman til New York í júlí í vikuferð. Þannig kostar flugið með Iceland Express dagana 12. – 19. júlí samtals 289.617 krónur. Icelandair hins vegar býður fjölskyldunni ekki jafn vænlegt tilboð því flug með þeim þessa daga kostar samtals 320.530 krónur. Reynist mismunurinn vera 30.913 krónur og er þá miðað við almennt farrými.

Nokkra athygli vekur að þrátt fyrir lægra verð Iceland Express reynist kostnaðarliðurinn „skattar og önnur gjöld“ mun hærri hjá þeim í síðarnefnda dæminu. Þannig greiðir fjölskyldan 77.482 krónur í skatta og gjöld hjá IE en hjá Icelandair greiðir sama fjölskylda aðeins 62.955 krónur.