Það verður að teljast dálítið merkilegt að þótt budda margra íslenskra áhugakylfinga sé öllu tómlegri nú en á árum áður hefur það lítið breytt áhuga landans að halda til Spánar í golf. Merkilegt vegna þess að verðlag á Spáni er komið verulega út úr korti og ekki aðeins vegna veikingar krónunnar heldur og vegna græðgi Spánverjanna. Þar er vandfundinn hringur á góðum velli undir tólf til þrettán þúsund krónur miðað við gengi dagsins.
Öðru máli gegnir um golf í Marokkó þar sem engin evra hefur né mun halda innreið sína. Þar eru vissulega mun færri vellir en sé ástríða fyrir golfi er Marokkó ekki síðri staður en Spánn. Það getur ritstjórn Fararheill.is vottað.
Hringur á eðalvöllum í Marokkó kostar milli fimm og átta þúsund krónur. Í sumum tilfellum eru vellirnir í eigu hótelkeðja og sé dvalið þar líka fæst umtalsverður afsláttur.







