Velflest skemmtiferðaskip sem alla jafna stoppa tímabundið í Alexandríu í Egyptalandi hafa nú breytt áætlunum sínum í kjölfar óeirðanna í landinu. Þykir það eðlilega ekki forsvaranlegt meðan öryggi ferðamannanna er ekki tryggt.
Þannig hafa minnst tvö stærri fyrirtæki breytt áætlunum skipa sinna þannig að nú er stoppað í Istanbúl í stað Alexandríu í Egyptalandi. Enn önnur hafa alfarið lokað á Egyptaland næstu viku eða svo.
Sem kunnugt er hafa velflestar ferðaskrifstofur reynt að koma ferðamönnum heim síðustu fjóra sólarhringa en töluverður fjöldi er ennþá fastur í Kaíró en þar eru óöldin hvað mest og ferðamenn hafa orðið fyrir reiði íbúa.
Enn hefur ekki orðið vart mótmæla á vinsælasta áfangastað landsins, Sharm el Sheik, en allur er varinn góður.






