Tíðindi

Aukinn fjöldi hyggst ferðast á næsta ári

  01/12/2010september 29th, 2014No Comments

Tveir þriðju hlutar aðspurðra í sérstakri könnun Tripadvisor í Bretlandi hyggjast ferðast meira á næsta ári en þeir gerðu í ár. Mælist almennt meiri jákvæðni meðal Breta nú en fyrir ári og verður að taka könnunina marktæka enda 6.200 manns sem þátt tóku.

Könnunin, Travel Trends Survey, þykir gefa ágæta mynd af væntingum og vilja fólks næstu tólf mánuði en Tripadvisor er stærsti og vinsælasti ferðavefur heims. Hafa sömu niðurstöður komið í ljós hvað Bandaríkjamenn og Þjóðverja varðar.

Bretar, þó nokkur efnahagslægð sé yfir landinu, ætla sér stærri og betri ferðalög árið 2011 og hyggjast eyða meiri peningum í þær ferðir en gert var á yfirstandandi ári.