„Það er auðvelt að vera vitur eftir á og á þeim tíma þegar ákvarðanir voru teknar um stækkun og stefnubreytingu WOW air var það augljóslega gert í þeirri trú að það væri best fyrir félagið og að með þessu móti gætum við eflt WOW air enn frekar til langs tíma litið,“

Sannarlega auðvelt að vera vitur eftir á þegar þú hefur engar upplýsingar um neitt. Það gildir ekki í flugrekstri.
Svo segir Skúli Mogensen í bréfi til fyrrum starfsmanna sinna sem gert var opinbert fyrr í vikunni. Þar fer forstjórinn fyrrverandi yfir ris og fall flugfélags síns í stuttu máli.
Gott og blessað með það. En við hér hnutum um þetta að vera vitur eftir á. Sem er vissulega rétt ef þú ert spilafíkill sem kláraðir mánaðarlaunin í vetfangi í spilakössunum á Ölveri. Við slíkar aðstæður er það bara óskhyggja að næsta spil færi þann stóra. Eða næsta eða næsta…
Hið sama gildir ekki um flugrekstur. Eiginlega þvert á móti. Öll flugfélög birta áætlun sína langt fram í tímann og oftast nær ár fram í tímann. Svo var í flestum tilvikum einnig hjá Wow Air. Það lá því fljótlega í augum uppi á kontórnum hvort tiltekin flugleið var að gefa feitt eður ei marga mánuði fram í tímann. Væri sala sæta undir væntingum var annaðhvort að lækka verð enn frekar eða slútta fluginu.
Ágætt dæmi um þetta er grein okkar frá 4. nóvember síðastliðnum sem lesa má hér. Án þess að hafa allar upplýsingar þá leit Indlandsflug Wow Air vægast sagt illa út þegar aðeins rúmur mánuður var í fyrsta flugið. Sex vikum seinna hætti Wow Air alfarið við Indlandsflug sitt.
Í flugrekstri er líka auðvelt að vera vitur á meðan…







