Flest okkar sem ekki erum í vinnu hjá slitastjórnum eða stjórnarmenn í Samtökum atvinnulífsins þurfum að hafa örlítið fyrir hverjum fimm þúsund krónum enda vaxa þeir seðlar ekki á trjám frekar en aðrir íslenskir.
En nú er tækifæri til að vinna sér inn einn einfaldasta fimm þúsund kallinn þó ekki sé það í beinhörðum. Ferðaskrifstofan Heimsferðir auglýsir sértilboð á gjafabréfum sínum og ekki er það vitlaus jólagjöf að okkar mati.
Þannig háttar að þeir sem kaupa gjafabréf fyrir tíu þúsund krónur fá í raun fimmtán þúsund krónur upp í ferð. Það er fimmari í vasann svo lengi sem fólk hefur hug að ferðast með Heimsferðum.
Það sleppur mætavel og eru töluvert betri kjör en almennt bjóðast með gjafabréfum eins og Fararheill hefur fjallað ítrekað um.








