Níu af hverjum tíu dönskum flugmönnum hafa gert mistök í flugstjórnarklefanum meðan á farþegaflugi stóð og hartnær annar hver flugmaður hefur sofnað undir stýri á farþegaflugvél.

Nennirðu að vera á tékkinu vinur. Ætla aðeins að leggja mig. Mynd Jetstar Airways

Nennirðu að vera á tékkinu vinur. Ætla aðeins að leggja mig. Mynd Jetstar Airways

Þessar upplýsingar hafa vakið töluverðan óhug í Danmörku en Politiken komst yfir niðurstöður sérstakra prófa sem gerð eru meðal danskra atvinnuflugmanna.

Í stuttu máli vinna þeir svo mikið að þeir eru oft á tíðum þreyttir en flugstjórnarklefi er líklega síðasti staður á jörð og himni þar sem fínasta mál er að dotta í vinnutímanum.

Dæmin heldur hrikaleg. Einn flugmaður sagðist hafa verið svo útkeyrður að hann gleymdi að setja hjólin niður fyrir lendingu. Annar flugmaður sagðist hafa fengið leyfi hjá aðstoðarflugstjóranum að dotta aðeins en þegar hann vaknaði var aðstoðarflugmaðurinn einnig sofnaður. Sá þriðji sagði það einungis tímaspursmál áður en stórslys verður sem rekja megi til þreytu flugmanns.

Danirnir sem um ræðir starfa víða í Evrópu hjá easyJet, Ryanair, Thomas Cook, Norwegian og SAS svo dæmi séu tekin.

Kannanir Dananna eru mjög í takti við kannanir annars staðar í Evrópu. Víða virðist vinnutími flugmanna og flugáhafna vera helst til mikill og of örar skiptingar milli dagvinnu og kvöld eða næturvinnu til að flugmenn geti hvílt sig nægilega vel.

Óspennandi tilhugsun ekki satt. Ekki hvað síst þegar tilteknir flugvélaframleiðendur segja engum frá því að á köflum getur tölva tekið framfyrir hendurnar á flugmönnum með stírur í augum…