Borgarbúar í Edinborg eru ekki alveg hundrað prósent sáttir. Svo margar íbúðir og húsnæði miðsvæðis í borginni hafa nú verið keyptar af fjárfestingaplebbum og auglýstar til leigu á Airbnb að íbúar flýja nú í stríðum straumum.

Edinborg. Þar eru heimafólk að víkja í stórum stíl fyrir túristum í miðborginni.
Hljómar kannski kunnuglega ekki satt. Það er jú ekki eins og ENGINN geti lengur leigt svo mikið sem skítakompu í miðbæ Reykjavíkur því græðgissinnaðir eigendur og ekki síst stór fjárfestingafélög hafa keypt upp allan miðbæ Reykjavíkur og þar nú ferðatöskuniður allan ársins hring meira og minna. Það er jú enginn langtímaleigjandi að greiða allt upp í 80 þúsund krónur fyrir sólarhringinn sem var ALGENGT verð á heimagistingu yfir nýliðin áramótin hér heima.
En svo virðist sem það sé einn Dagur B. Eggertsson líka ráðandi afl í Edinborg. Samkvæmt fréttaveitunni Scotsman búa ekki svo margir Skotar lengur í miðborg Edinborgar. Það pláss meira og minna frátekið fyrir túrista þessi dægrin.
Skosk yfirvöld þó enn heimskari en þau íslensku. Þar var á síðasta ári sett upp sérstök nefnd til að fara í saumana á vandamálinu og í þeirri sex manna nefnd helmingur frá hagsmunaaðilum á borð við Airbnb, Uber og skoska ferðamálaráðunu.
Látum okkur sjá. Ef hugmyndin er að vernda hag heimamanna hvers er eini tilgangur borgar- og ríkisstjórna þá liggur óljóst fyrir hvers vegna Skotar kalla til aðSkotafólk til að ráða bót á máli. Það er jú ekki eins og erindreki Airbnb sé að fara að mæla með að miðborg Edinborgar verði alfarið lokuð fyrir Airbnb svo hinn venjulegi John og hin venjulega Joan geti lifað á því svæði.
Tökum það þó aðeins út fyrir sviga. Hversu margir ferðamenn hafa áhuga að hanga á svæði þar sem engir eru heimamennirnir?
Þetta er beisik tveir plús tveir eru fjórir. Airbnb þýðir að tveir plús tveir gera sex svona eitthvað tímabundið en fyrr en seinna þá fara neikvæðu ummælin að detta inn. Eða hver hefur áhuga að heimsækja París, Róm, Bangkok, New York, Ríó eða Mexíkóborg og hitta aldrei nokkurn tíma heimafólk sem ekki er að afgreiða bús eða selja fimm sentimetra ísbirni…
En herra Eggertsson kann ekki að hugsa lengur en hálft ár fram í tímann virðist vera. Sama gildir um ættingja hans í Edinborg.







