Hólí Mólí! Héldum eitt augnablik að Icelandair væri raunverulega að kveikja á því að þeir eru ekki einir í heiminum og höfðum hugsað okkur að skrifa um þann merkilega áfanga. En svo deyja vonir fljótar en heilasellur í Donald Trump.
Okkur vantaði flug til London á næstunni og kíktum á vef Dohop. Þar fundum við þetta klukkan 20:37:

Viti menn! Icelandair að bjóða fargjald á pari við lággjaldaflugélagið Wizz Air. Það saga til næsta bæjar og jafnvel næsta lands enda Icelandair að mestu hingað til látið samkeppni sem vind um eyru þjóta.
En svo þurfti að taka úr þvottavélinni…
Réttum þrettán mínútum síðar, 20:52, leituðum við aftur að fargjaldi á nákvæmlega sama tímapunkti á nákvæmlega sama stað en að þessu sinni hjá Google Flights. Ímyndið ykkur hversu hissa við vorum að sjá þetta:

Ekki aðeins hafði fargjaldið hjá Wizz Air LÆKKAÐ um rúm ellefu prósent heldur hafði fargjaldið með Icelandair HÆKKAÐ um tæplega 42 prósent!!! Ekki furða að Icelandair sé að blæða peningum hægri vinstri og forsvarsmenn þar vita hvorki í þennan heim né annan.
Flest viljum við gjarnan versla við Icelandair enda íslenskt flugfélag með íslenskar áhafnir að mestu leyti sem fá greidd góð íslensk laun. En svona megahækkanir á augabragði þýða að við hér snúum viðskiptum okkar annað. Þú ættir að gera hið sama.







