E itt að láta sig hafa eitt stykki maraþon í norðlægum borgum. Allt annað og töluvert erfiðara að hlaupa sömu vegalengd undir steikjandi sólinni á Kanaríeyjum.

Upp í mót, urð og grjót, ryk og drulla og skínandi sólin ber þig niður í hverju skrefinu. Velkomin á Transvulcano maraþonið. Skjáskot
Ófáir Íslendingar ferðast nú vítt og breitt um heiminn í því skyni einu að taka þátt í langhlaupum um allar trissur. Okkur skilst að hátt í 60 Íslendingar hafi verið þátttakendur í árlegu maraþoni í Rotterdam í apríl og vel yfir tvö hundruð landar hafi skellt sér með í maraþonið í Boston í sama mánuði svo aðeins tvö dæmi séu nefnd.
Meðalhitastig í Boston í apríl er níu gráður. Meðalhitastig í Rotterdam þann mánuðinn líka níu gráður. Nokkuð þægilegt bara fyrir langlaup.
En hversu góður hlaupari ert þú ef hitastigið er átján gráður að meðaltali eins og raunin er þegar stærsta maraþon á Kanarí, Gran Canaria, fer fram? Það mót, Transgrancanaria, sem yfirleitt fer fram snemma árs, er fjölsótt mjög og góðu heilli í boði að taka hálfmaraþon eða enn styttri vegalengdir ef svo horfir við. Eðlilega enda vanmeta margir hitaáhrifin og duga töluvert skemur á hlaupum en heimavið.

Margir um hitu og hitastigið fer vel yfir tuttugu gráður í erfiðasta hlaupi á Kanaríeyjum. Mynd ElDiario
Transgrancanaria fer að hluta fram á fallegu en berangurslegu hálendi Kanarí. Mörgum finnst það erfitt en þeir hinir sömu ættu þá að prísa sig sæla fyrir að skrá sig ekki í Transvulcano hlaupið sem fram fer í maí ár hvert á eyjunni La Palma sem einnig tilheyrir Kanaríeyjum. Hlaupið í La Palma er þó últramaraþon og það nánast alfarið upp og niður hraun og lausa ösku sem eðlilega gerir hlaup enn erfiðari en ella. Plús auðvitað að yndislegt hitastigið í maí er að meðaltali kringum 20 gráður og fer vel yfir það þegar sólin stendur sem hæst.
Kannski bara best að slaka aðeins á og láta Tenerife Walking Festival duga 😉




