P unktur er nú kominn á sjötíu og fimm ára sögu ítalska flugfélagsins Alitalia sem hætti formlega starfsemi sem flugfélag á miðvikudaginn var.

Enn eitt flugfélagið á hauga sögunnar.

Þann dag flaug rella merkt Alitalia hinsta flugið en eftirleiðis þarf fólk að leita að flugfélaginu Italia Trasporto Aereo, skammstafað ITA, til að finna sambærilegt leiðakerfi innan Ítalíu og Alitalia bauð upp á. ITA er nefninlega formlegur arftaki og eins og með Alitalia kemur ítalska ríkið duglega að rekstrinum.

Rekstur hins, oftast nær, ríkisrekna Alitalia var skólabókardæmi um hræðilegan rekstur og ekki síður gríðarlega spillingu en þetta gríðarstóra flugfélag á ítalskan mælikvarða sýndi hagnað jafn oft og Miðflokkurinn náði tíu mönnum á þing.

Svo illa var farið með hlutina að ekki einu sinni hinu vellauðuga Etihad Airways, sem keypti stóran hlut í ítalska flugfélaginu árið 2015, náði að snúa rekstrinum við.

Ítalir eru samt þekktir fyrir að hanga lengi á gömlu roði og kvisast hefur út sá orðrómur að nafni hins nýja flugfélags, ITA, verði áður en langt um líður breytt formlega í Alitalia á nýjan leik. Fyrir því sú einfalda ástæða að þrátt fyrir hrapallegan rekstur um áratugaskeið er nafnið þekkt víða um heim sem sæmilega áreiðanlegt flugfélag meðan fáir vita hver þremillinn ITA stendur fyrir.