V ið þekkjum allar þessar ágætu eyjar í Miðjarðarhafinu. Ibiza, Mallorca, Sikiley, Malta, Kýpur og Sardinía. Svo ekki sé minnst á grísku eyjarnar í Eyjahafi sem eru hver annarri yndislegri. Stóra spurningin er hins vegar sú hvers vegna hin ekki síðri Korsíka er fjarri því að trekkja að ferðafólk í sama mæli og allar hinar. 

Hvers vegna nýtur Korsíka ekki sömu vinsæla og nágrannaeyjurnar Sardinía og Mallorca? Mynd Andrew Dennes

Hvers vegna nýtur Korsíka ekki sömu vinsæla og nágrannaeyjurnar Sardinía og Mallorca? Mynd Andrew Dennes

Á yfirborðinu virðist engin ástæða til annars en Korsíka ætti að vera einn allra vinsælasti áfangastaður ferðamanna við Miðjarðarhafið og alls ekki síðri en til dæmis Mallorca.

Vissulega liggur Korsíka aðeins norðar en Mallorca en á móti kemur að þangað er mjög stutt að fara bæði frá Frakklandi og Ítalíu. Það er reyndar styttra ferðalag frá báðum stöðum en frá meginlandi Spánar til Mallorca.

Í þokkabót við þá staðreynd þá er landslagið öllu fallegra á Korsíku en Mallorca býður upp á. Í raun má segja að Korsíka hafi allt sem Mallorca hefur og fjöll og firnindi, skóga og betri verslanir og veitingastaði í þokkabót. Síðast en ekki síst er veðrið ekki síðra þar á sumrin en á syðri eyjum.

Svo hvað er vandamálið? Hvers vegna er hægt að þvælast um stóran hluta Korsíku án þess að verða vör við túrista um allar trissur? Hvers vegna hefur ferjum sem sigla til og frá Korsíku fækkað jafnt og þétt síðustu tíu árin?

Í ljós kemur að ástæðurnar eru tvær. Önnur góð og hin verri.

Góðu fréttirnar eru þær að eyjaskeggjar hafa aldrei kært sig mikið um fjöldatúrisma og reyndar unnið markvisst gegn slíkri þróun. Bæði þingmenn eyjunnar og margir háttsettir aðrir eins og borgarstjóri Ajaccio hafa einmitt hlotið brautargengi fyrir andstöðu við að byggja hótel á hverri sandströnd hér. Sem er út af fyrir sig stórmerkilegt nú þegar ríki heims berjast flest fyrir að heilla til sín fleiri og fleiri ferðamenn.

Töluverður fjöldi fólks segir engan vafa leika á að Korsíka sé fallegasta eyjan í Miðjarðarhafi. Mynd Nick Reynolds

Töluverður fjöldi fólks segir engan vafa leika á að Korsíka sé fallegasta eyjan í Miðjarðarhafi. Mynd Nick Reynolds

Hin ástæðan er öllu síðri og kannski kemur einhverjum mikið á óvart. Miðað við fólksfjölda eru hvergi í Evrópu framdir fleiri alvarlegir glæpir en á Korsíku. Þar er ítölskum mafíósum um að kenna en þeir hafa reynt sitt allra besta til að gera Korsíku að annarri Sikiley í langan tíma. Hér eru menn skotnir til bana með reglulegu millibili og auðvitað er slíkur staður lítt að heilla ferðamenn frá meginlandinu.

Reyndin er þó sú að glæpir hér beinast yfirleitt ekki að ferðafólki heldur eingöngu embættismönnum eða áhrifafólki sem setur sig upp móti mafíunni en það breytir engu. Þegar fólk getur valið milli fjölda öruggari dvalarstaða á ferðalögum mun Korsíka alltaf verða útundan.

Fyrir vikið er Korsíka sennilega eina eyjan í öllu Miðjarðarhafi þar sem þvælast má um og upplifa kyrrð og ró fjarri mannabyggðum. Fyrir vikið viðheldur eyjan sama sjarma nú og fyrir daga fjöldatúrisma og fyrir vikið er hægt að njóta hér lífsins á ódýrari hátt en á nágrannaeyjum.