Eflaust eru þarna úti nokkrir að verða úrkula vonar um að geta baðað sig á heitri strönd við Miðjarðarhafið þetta sumarið. Ferðir eru margar uppseldar og eru almennt í dýrari kantinum sem eftir eru.

Ahhhh.  Algarve klikkar barasta aldrei. Mynd John Thurm

Ahhhh. Algarve klikkar barasta aldrei. Mynd John Thurm

Kannski er vorútsala norska lággjaldaflugfélagsins Norwegian að gera sig fyrir þá. Sú stendur til 8. apríl næstkomandi og er nokkur afsláttur á ferðum út þetta ár. Þar með talin fargjöld allt niður í 7.500 krónur aðra leiðina frá Osló til staða á borð við Algarve í Portúgal, Antalya í Tyrklandi og Alicante á Spáni í júlímánuði svo dæmi sé tekið.

Aldeilis frábær fargjöld á annatíma en hængur er jú á hér því komast þarf til Oslóar og enginn farangur er með í för. Farangur per se kostar engar fúlgur eða tæpar tvö þúsund krónur aðra leið en verra að finna flug til Osló og heim aftur sem vit er í. Þangað er flókið að komast undir 15 til 20 þúsund krónur aðra leið þetta sumarið miðað við stöðuna hjá Icelandair og Norwegian. Sem er þá farið að skjaga upp í allra ódýrustu fargjöld Wow Air til Alicante í beinu flugi sem er vitaskuld allra skemmtilegasta leiðin.

En leiki áhugi á dvöl í Tyrklandi, Portúgal eða annars staðar þangað sem innlend flugfélög koma hvergi nærri gæti hér verið tiltölulega ódýr lausn á sumarleyfisferðinni 2014.

Heimasíða Norwegian hér.