Forstjóri Toyota og fylgisveinar hans í stjórn Icelandair hafa nú sent tæplega 40 Íslendinga út á Guð og gaddinn. Eins og við hér spáðum fyrir um.

Forstjóri Toyota og stjórnarformaður Icelandair. Milljarðamæringur sem þolir ekki að aðrir fá greidd sæmileg laun.
Dimmur dagur fyrir tæplega 40 starfsmenn Icelandair hérlendis. Þeim hent á haugana og í þeirra stað finnast nú skælbrosandi einstaklingar í Eistlandi og Indlandi. Og auðvitað landsliðsmenn Íslands í knattspyrnu sem brosa út í eitt í auglýsingum Icelandair.
En myndu þeir brosa út í eitt ef þeir vissu að forstjóri Toyota, Úlfar Steindórsson, er að henda Íslendingum á haugana og ráða Eista og Indverja í þeirra stað?
Vandséð að hugsandi maður eins og Aron Einar Gunnarsson stígi nokkru sinni aftur um borð í rellur Icelandair. Hann er jú varla samviskulaus.
Allt eftir bókinni hér. Við spáðum þessu fyrr í þessum mánuði þegar ljóst varð að Icelandair vildi útvista öllum fjandanum til útlanda. Það gat ekki annað en endað með uppsögnum Íslendinga.
Sem er þokkalega par á vellinum í viðskiptaheiminum. En ólíkt kannski öðrum stórfyrirtækjum sem skipta út heimafólki fyrir láglaunuðum útlendingum þá er Icelandair í meirihluta eigu lífeyrissjóða landsmanna. Sem merkir að jafnvel þó Icelandair græði meira eftirleiðis þá hafa 40 Íslendingar minna úr að moða og kaupa eðli máls samkvæmt færri ferðir með Icelandair. Hvað þá nýjar Toyota-bifreiðar. Plús auðvitað að lifeyrisgreiðslur lækka og lífeyrissjóðsgjöld hækka.
Eistum og Indverjum slétt sama. Þeir ekkert að fljúga mikið með Icelandair hvort sem er og versla sannarlega ekki við Úlfar Steindórsson þegar þeir sjoppa sér Toyota.







