Icelandair flýgur einu sinni í viku næstu mánuðina beint til Costa del Sol eða Malaga nánar tiltekið. Slíkt aðeins hægt að kaupa gegnum ferðaskrifstofuna Vita og þá hvort sem er flugið eitt og sér eða pakkaferð.
Við leit fundum við flug fram og aftur fyrir rétt tæpar 70 þúsund krónur á mann eða 35 kall hvora leið. Það flokkast ekki sem súperverð en það er taska innifalin og um morgunflug að ræða út sem er stór bót í máli.
En undarlegt er að pakkaferðir Vita miðast allar við þreytta gegnsósa ferðamannastaði. Staði á borð við Marbella, Fuengirola, Estepona eða Torremolinos sem þóttu móðins 1980 og hafa bara versnað síðan.

Bara ein af nokkrum ágætum ströndum Malaga.
En Vitamenn bjóða enga gistingu í borginni Malaga. Borg sem hefur tekið stakkaskiptum til hins betra síðustu árin, borg sem hefur feita sögu, frábæra veitingastaði, kostulegar minjar, ágæt söfn, fyrsta flokks strönd og bari og skemmtihús um allt. Plús auðvitað að það er flogið til Malaga og aðeins 20 mínútur inn í borg með bíl. Úrvalið í Malaga sirkabát fimmtíufalt meira og betra en finnst í Torremolinos og almenn verðlagning á mat og þjónustu töluvert lægri.
Hér má finna vegvísi okkar til Malaga en sá er reyndar kominn til ára sinna og við erum að vinna að uppfærslu eftir að hafa dvalið hér í mánuð í vetur sem leið. Myndum taka dvöl hér feitt yfir dvöl á þessum gömlu „góðu“ sem Vita er að bjóða.







