Þ að er auðvelt að fletta mörgum greinum okkar um merkileg heimili sögufrægs fólks sem nú hefur verið breytt í safn. Söfn helguð Karli Marx, Sigmund Freud, Hemingway, Thor Heyerdal, Pol Pot, Agötu Christie og Charles Darwin finnast nú á stöðum sem þessar manneskjur kölluðu heimili sitt á árum áður. En það er æði sjaldgæft að gestir geti gist á slíkum stöðum.

Fyrrum heimili F.Scott Fitzgerald og konu hans er nú bæði safn og gistimöguleiki. Mynd Fitzgerald & Zelda Museum

Borgin Montgomerie í Alabamafylki í Bandaríkjunum er líklega ekki mikið á óskalista ferðalanga úr ballarhafi. Nóg er jú annað að skoða í veröldinni. En ef svo vill til að bókhneigðir Íslendingar finna sig á þessum slóðum er að minnsta kosti eitt hér sem er allsérstakt og kannski einstakt: Það er hægt að gista á fyrrum heimili, og núverandi safni, rithöfundarins fræga F. Scott Fitzgerald.

Kappinn sá eitt höfuðskálda Bandaríkjanna og þekktastur fyrir bók sína um Gatsby hinn mikla. Ekki síður hefur verið mikið gert út á afar stormasamt hjónaband hans og Zeldu Fitzgerald í kvikmyndum og bókum gegnum tíðina. Hin litríka Zelda var frá Montgomerie og hér kynntist hún F. Scott sem þá var óbreyttur hermaður í nálægum heræfingabúðum.

Hjónaleysin festu kaup á húsi í Montgomerie sem nú er alfarið safn, F. Scott & Zelda Museum, sem eitt og sér er ástæða ferðar en ef það dugar ekki til er líka hægt að GISTA í húsinu. Í sama húsi og tvær af fimm skáldsögum eins mesta rithöfundar Bandaríkjanna voru skrifaðar!!!

Ekki slæmur díll ef þú spyrð okkur. Og ekki þarf að gúggla neitt til að finna pleisið og bóka. Það gerirðu bara gegnum Airbnb hér 🙂