Ef þú finnur flug á lágmarksverði með easyJet, Icelandair eða Wow Air til Englands á næstunni geturðu tvinnað það við einhver af þeim ágætu tilboðum sem British Airways er að selja núna.

Sjaldan mikið vesen að fljúga með British Airways.
Það flugfélag er sannarlega ekkert lággjaldaflugfélag en þjónusta er góð og vélar líka og þeir komast ansi langt niður með fargjöld sín þegar sértilboð eru í boði. Frá London er hægt að fljúga með þeim fram og aftur til Sevilla á Spáni niður í 8.300 krónur aðra leið eða til Napolí á Ítalíu fyrir tæpar fjórtán þúsund krónur svo bara tvö dæmi séu tekin.
Svo lág fargjöld eru hættulega nærri lággjaldaflugfélögum og stundum bara betri sé tillit tekið til að hjá British Airways má hafa farangur með án aukagjalds í flestum tilvikum.
Um að gera að skoða úrvalið hér en tilboðin standa fram til 10. mars.







