A llir á tánum hjá ferðaskrifstofunni Vita. Allavega ef marka má þetta „fína” tilboð í viku til Alicante þann 17. júní…

Aftur til fortíðar er raunverulega möguleiki gegnum Vita. Skjáskot

Þú last þetta rétt. Ein stærsta ferðaskrifstofa landsins er enn þann dag í dag, 21. júní, að auglýsa flug  + gistingu í Alicante þann 17. júní eins og sjá má á meðfylgjandi skjáskoti af vef fyrirtækisins. Já, þeir eru að meina 17. júní 2021.

Aldeilis makalaust hjá stórri ferðaskrifstofu. Nema auðvitað að forsvarsmenn Vita hafi uppgötvað leið til að fara raunverulega til fortíðar. Þá er þetta eitthvað besta tilboð sem fyrirfinnst í veraldarsögunni.

Íronískt já en er þetta ekki svipað og að Mbl birti fimm daga gamlar úreldar fréttir sem glænýtt stöff á forsíðu sinni. Sem þeir kæmust aldrei upp með…