Engum vafa undirorpið að búið er að skera inn að beini í rekstri RÚV síðustu misserin. Það sést ekki síst á því að alls kyns stafsetningarvillur finnast í velflestum nýlegum greinum á vef þess en fáheyrt var að finna slíkt áður fyrr.
Svo eru það fréttirnar sjálfar sem á köflum eru beinlínis rangar. Eins og má til dæmis sjá á meðfylgjandi skjáskoti úr frétt RÚV þann 22. júní.
Þar er neðst í grein um hlutafjárútboð skýrt frá því að forstjóri Icelandair hafi verið einn af frumfjárfestum í Play og hafi meðal annars farið fram á gjaldþrotaskipti félagsins á síðasta ári.
Húha! Stórfrétt sem sett er neðst í grein. Hreint makalaust alveg.
Ef satt væri.
Staðreyndin er að það var ekki Bogi Nils, forstjóri Icelandair, sem var einn stofnfjárfesta Play fyrir tveimur árum heldur Bogi nokkur Guðmundsson eins og lesa má um hér. Sáraeinfalt að ganga úr skugga um þetta.
Fagmennska punktur is.







