Ferðaskrifstofan Heimsferðir hefur sett í sölu tilboðsferðir til Tenerife og Gran Canaria en þar býðst 20 þúsund króna afsláttur af ákveðnum ferðum þangað en þó aðeins fyrir handhafa Visa korta. Er um 20 þúsund króna afslátt að ræða á öllum gististöðum sem ferðaskrifstofan býður á þessum tveimur áfangastöðum.
Um þrjár ferðir er að ræða. Tvær til Tenerife og eina til Gran Canaria.
Til Tenerife er flogið 27. nóvember í 15 daga ferð og þann 11. desember í 10 nætur. Til Gran Canaria er flogið í tíu nátta ferð þann 11. desember. Athygli vekur að í báðum flugferðunum til Tenerife er millilent á leiðinni sem mögulega útskýrir 20 þúsund króna afsláttinn.
Ódýrari ferðin til Tenerife miðað við afsláttinn er á 119. 080 krónur og er gist á Compostela Beach á Playa de las Americas ströndinni. Er þetta íbúðahótel númer 318 af 433 hótelum á eynni samkvæmt Tripadvisor.
Ferðin til Gran Canaria kostar með afslætti og gistingu á Los Tilos ódýrast 99.980 krónur. Er það staðsett á Playa de Ingles ströndinni frægu og er númer 152 af 448 hótelum á Gran Canaria samkvæmt Tripadvisor.