Typpið er aldeilis uppi á forsvarsmönnum franska flugfélagsins Air France. Þar er allt að gerast á skömmum tíma. Flugfélagið hefur hafið sölu á billegri farmiðum en ella sé fólk að ferðast töskulaust og eins og það sé ekki nóg er sala miða hafin með glænýju lággjaldaflugfélagi þeirra Hop!

Nýjasta lággjaldaflugfélag Evrópu í loftið. Allra ódýrastu miðar fást frá rúmum átta þúsund krónum frá París.
Flugfélagið hefur undanfarin ár tapað gríðarlegum peningum á rekstri sínum að stórum hluta vegna tilkomu lággjaldaflugfélaga um alla Evrópu. Nú skal hins vegar blásið til sóknar og það gert með stæl.
Air France kynnti í janúar og Fararheill greindi þá frá að eftirleiðis yrðu í boði tvenns konar fargjöld með Air France flugfélaginu sjálfu á ódýrasta farrými. Annars vegar eitt verð fyrir þá sem ferðast með tösku og annað gjald fyrir þá sem ekkert taka með sér. Þessi fargjöld kallas MiNi og eru í boði á fjölmörgum flugleiðum félagsins. Þau eru mun ódýrari en hefðbundið gjald en aðeins má taka með sér handfarangur og ekki er hægt að velja um sæti.
Sala á MiNi fargjöldunum gengur framar vonum og fór bókunarvél flugfélagsins á hliðina þegar opnað var fyrir sölu. En betur má ef duga skal segja franskir og þann 6. febrúar hefst sala farmiða með glænýju lággjaldaflugfélagi sem hlotið hefur nafnið Hop!
Allt þetta skiptir okkur Frónbúa kannski ekki svo miklu máli. Og þó. Þetta eykur ferðamöguleika þeirra sem vilja þvælast um á eigin spýtur og gera það á allra ódýrasta máta og París, þaðan sem Hop! flýgur meðal annars er í boði í beinu flugi frá Íslandi. Sjálfsagt að bera það saman við það sem í boði er frá London, Osló eða Kaupmannahöfn.
Heimasíða Air France hér. Meira um MiNi fargjöld hér. Allt um Hop! hér.






