Ástæða þess að allir ferðalangar sem fara gegnum Keflavíkurflugvöll þurfa að fara úr skóm við öryggisleit er sú að meirihluti fólks á leið um völlinn er á leið til Bandaríkjanna. Þar eru reglur um flugöryggi töluvert strangari en gerist í Evrópu. Ekki stendur til að breyta þessu.
Ritstjórn Fararheill.is lék forvitni að vita hvers vegna krafa væri um að fólk færi úr skóm við öryggisleit í flugstöð Leifs Eiríkssonar meðan ekki er farið fram á slíkt á mörgum af stærri flugvöllum Evrópu og reyndar víðar í heiminum.
Ekki síst er ástæða til athugasemda þar sem níu ár eru síðan síðast varð gerð tilraun til að fela sprengiefni í skóm sem ætlað var til sprengingar í flugvél. Virkaði sú sprengja ekki þegar til kom. Stutt er hins vegar síðan komið var í veg fyrir hryðjuverk í Bandaríkjunum þegar ungur maður faldi sprengiefni í nærklæðum sínum. Ekki bólar hins vegar á kröfum um að skanna þurfi nærklæði farþega í millilandaflugi.
Stefán Thordersen, flugverndarstjóri á Keflavíkurflugvelli, segir ekki standa til að breyta þessu fyrirkomulagi enda þurfi að taka tillit til reglna í Bandaríkjunum ekki síður en í Evrópu. Bendir hann þó einnig á að skóreglan flýti fyrir því málmplötur séu í velflestum skóm og slíkt tefji þegar farið er gegnum öryggishlið.






