Dohop, Wow Air, Icelandair, hótelbókanir.is. Allir þessir aðilar auglýsa alls staðar vel og mikið að þeir bjóði lægsta verð á gistingu hvarvetna í veröldinni. Því miður láta flestir blekkjast.

Stór hætta á blússandi rómans á þessu hreint ágæta hóteli. Mynd HA
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem við ætlum að sýna og sanna að þú finnur raunverulega lægsta verð á gistingu hjá okkur hjá Fararheill. Svo mikið lægra verð að þér gæti nú blöskrað. Eins og okkur blöskrar þegar fólk hugsunarlítið bókar gistingu um leið og flug af því það er svo einfalt og þægilegt. Þau þægindi kosta drjúgan skilding gott fólk.
Að þessu sinni veljum við besta hótelið í Alicante á Spáni samkvæmt 2015 lista TripAdvisor. Það er fimm stjörnu hótelið Hospes Amerigo í gamla borgarhlutanum.
Við veljum af handahófi góðan vikupakka í byrjun desember svo við getum tekið góðan skurk í verslunum borgarinnar fyrir jólin og kannski fengið smá lit á kropp ef veður er gott. Fyrir valinu varð 1..til 8. desember að þessu sinni. Tímasetningin skiptir þó engu eins og þú getur sjálf/sjálfur gengið úr skugga um með samanburði.
Á vef TripAdvisor fæst uppgefið verð á hótelum sem þar finnast. Þar fæst gisting umrædda helgi á Hospes Amerigo á Booking.com, sömu bókunarvél og íslensku fyrirtækin nota og ota að þér.
Sé farið inn á vef Booking.com frá vef TripAdvisor færð þú meðfylgjandi mynd. Við fáum vikugistingu hér á þessu dúndurhóteli, 1. til 8. desember fyrir 122.196 krónur.

Af TripAdvisor förum við yfir á vef Booking sem færir okkur þetta. Skjáskot
En vitibornir lesendur Fararheill vita sem er að sjaldan er allt sem sýnist. Sérstaklega ekki þegar kemur að stórfyrirtækjum eins og Booking.com.
Víkur nú sögunni að hótelbókunarvef Fararheill. Ólíkt Booking.com sem er í eigu risafyrirtækis í Bandaríkjunum er okkar vefur ástralskur og enn í eigu þeirra sjö einstaklinga sem stofnuðu hann í bílskúr í Sidney árið 2005. Hann var stofnaður af því að sjömenningunum blöskraði lítið aðgengi að samanburðarsíðum vegna hótela og ferðalaga.
Flettum upp helgarpakkanum okkar hjá Hospes Amerigo 1. des. til 8. des. og það sem við fáum má sjá hér að neðan:

Hmmm. Einir fjórir aðilar að bjóða mun lægra verð en finnst lægst hjá Booking sem er þó sagt allra besta hótelbókunarvélin? Verðmunurinn verulega drjúgur fyrir fjórar nætur.
Þrátt fyrir að Booking sé „mest og best“ eru einir fjórir aðilar aðrir að bjóða mun lægra verð á nákvæmlega sömu gistingu sömu daga. Við bjóðum gistingu hér umrædda viku á herbergi fyrir tvo lægst á 88.440 krónur. eða tæplega 33 þúsund króna lægra verði en TripAdvisor segir allra besta verð hjá Booking.
Niðurstaðan eins og alltaf: ekki láta plata þig.







