
Nýjar rellur Play menga mikið mun minna en gamlar rellur Icelandair. Samsett mynd
Fögur orð og loforð á alla kanta frá pólitíkusum alls staðar öllum stundum en rannsóknir vísindamanna sýna svo ekki verður um villst að ekki eru mörg ár þangað til mengun, ofveiði, hitar, skógarhögg, vatnsskortur, hungur og hitt og þetta annað spennandi munu gera líf okkar plebbanna að samfelldri þrautagöngu frá A til Ö. Allt verður dýrt, erfitt verður að anda, hitar ætla okkur öll að drepa og svo framvegis og svo framvegis.
Álfyrirtækið Alcoa tilkynnti nýverið með pompi og prakt að fyrirtækið stefndi að því að jafna út alla mengun sína í seinasta lagi árið 2050. Fyrirtækið, einn allra mesti mengunarvaldur í hópi stórfyrirtækja á heimsvísu, ætlar að taka sér tæp 30 ár til að dúlla sér í lagfæringar. Það á sama tíma og allur hagnaður alls staðar færist í bókhaldinu sem skuld við móðurfélagið og engir skattar greiddir neins staðar þar sem fyrirtækið rekur starfsemi. En hlutafjárgreiðslur til eigenda eru feitar ár hvert.
En 2050 er 25 árum of seint samkvæmt loftslagsfræðingum. Öll þessi flottu störf lítils virði ef hvergi verður líft fyrir hitum og viðbjóð eftir aðeins tíu ár eins og meðal annars Austurland fékk smjörþefinn af í sumar.
Meðal annars þess vegna er mikilvægt að stjórnvöld sekti strax þá aðila duglegar sem menga meira en góðu hófi gegnir. Til dæmis Icelandair.
Leita má lengi að evrópsku flugfélagi sem flýgur eldri rellum en Icelandair. Meðalaldur flota fyrirtækisins er í dag 17,9 ár. Sautján af alls 25 rellum félagsins eru eldri en 23 ára. Þær voru smíðaðar á sama tíma og Monica Lewinsky var að veita forseta Bandaríkjanna afar sérstaka þjónustu í Hvíta húsinu og tveir tölvunördar stofnuðu bílskúrsfyrirtækið Google.
Með öðrum orðum: rellur Icelandair menga miklu meira en rellur Play hvers meðalaldur er rétt rúm þrjú ár. En Icelandair þarf samt ekki að greiða neitt meira til ríkisins en flugfélagið Play þó rellur þess fyrrnefnda mengi 20-30 prósent meira en rellur Play.
Allt eðlilegt við það…







