F yrirsögnin hér að ofan ætti að sjálfsögðu að vísa til sögufrægrar götu en þar sem þrælahald og vistarbönd eru jafn viðkvæm í Portúgal og suðurríkjum Bandaríkjanna förum við milliveginn.

Gatan sem hér um ræðir er Rua Do Poco Dos Negros. Ein af þessum yndislegu níðþröngu götum sem prýða gamla bæ höfuðborgar Portúgal. En þessi er, eins og nafnið gefur enn til kynna þann dag í dag, töluvert merkilegri sögulega en flestar aðrar.

Já, þó ekki kunnir þú portúgölsku þarf sennilega ekki að vefjast fyrir þér hvað orðið Negros þýðir. Orðið ennþá vinsælt hjá stöku fávískum hvítingjum vestanhafs í Bandaríkjunum sem nota það gjarnan í niðrandi tilgangi við öll tækifæri.

Í þessari einu götu, og aðeins hér, gátu svartir þrælar Portúgala hafst við í denn tíð. Skjáskot

Negro, per se, merkir þó ekki annað en svart á spænsku og portúgölsku. Út af fyrir sig hvorki niðrandi né merkilegt orð. Nema auðvitað fyrir þá sök að það voru Spánverjar og Portúgalir sem hernumdu heilu álfurnar á öldum áður og komu fram við frumbyggjanna sem fávita og þræla í kjölfarið.

Og þar liggur hundurinn grafinn í Lissabon. Rua Do Poco Dos Negros var sem sagt blökkumannagata höfuðborgar Portúgals þegar það litla land réði næstum jafn stórum hluta á hnettinum og yfirborðskenndir Bretarnir sem montuðu sig af því að sólin settist aldrei á heimsveldi þeirra.

Jamms, við sögðum blökkumannagata. Sem eitt og sér segir allt sem segja þarf um samkennd og lipurð Portúgala til forna. Sama þjóð og réði ríkjum yfir til að mynda Angóla, Mósambík, Grænhöfðaeyjum og Gíneu svo fátt eitt sé nefnt.

Rua Do Poco Dos Negros er ekkert merkilegri en aðrar fallegar götur miðborgar Lissabon svona ef fólk bara röltir um. En að þetta sé eina gatan þar sem þrælarnir máttu stíga niður fæti eða leggja haus á kodda í höfuðborginni á sínum tíma, gerir götuna atarna töluvert merkilegri nú til dags en nágrannagöturnar. Ef þrælarnir náðust utan þessarar einu götu voru barsmíðar, svipuhögg, húðstrýking eða þaðan af verra í verðlaun.

Röltu endilega um og hugsaðu til þess að þessi annars fátæka þjóð nútímans kom ömurlega fram við fátækar þjóðir fyrir nokkrum öldum síðan.