Þið nýkomin á fínt hótel í Seattle í Bandaríkjunum. Meðan þið slakið á eftir ferðina fer þriggja ára sonur ykkar að leika sér að því að hoppa í rúminu. Hann gáir ekki að sér og skoppast fram af rúminu og út á gólf með tilheyrandi gráti. Það sér ekkert á barninu en þið takið enga sénsa og hringið á sjúkrabíl. Þið sjáið eftir því í mörg ár á eftir.

Heimsókn á bráðadeild í Bandaríkjunum getur aldeilis dregið dilk á eftir sér.

Ofangreint er allt þokkalega eðlilegt. Fólk er almennt þreytt eftir langar flugferðir en smáfólkið sem svaf svefni hinna réttlátu meginhluta flugsins er kjaftfullt af orku þegar komið er á hótelið. Það alls engin mínus að gefa smáfólkinu stundargrið eftir slíkt ferðalag.

Nema að ofangreint er líka raunveruleikinn. Þetta gerðist raunverulega hjá íslensku pari með þriggja ára son sinn á ferð í Seattle á síðasta ári. Unga parið varð svo hrætt um soninn að sjúkrabíll var kominn á hótelið áður en nokkur náði heilli hugsun.

Heila hugsunin sem hér um ræðir er sú staðreynd að læknisþjónusta í Bandaríkjunum kostar bókstaflega hand- og fótlegg og jafnvel dýrustu ferðatryggingar dekka aðeins brotabrot af hugsanlegu líkamlegu tjóni á ferðum í landinu.

Hjónakornin voru því engan veginn viðbúin því að reikningur frá bráðadeild í Seattle barst þeim í byrjun sumars. Reikningur upp á litlar tvær milljónir króna!!! Og það þrátt fyrir að hjónin sem hér um ræðir voru með viðbótar-ferðatryggingu í ofanálag við hefðbundna ferðatryggingu.

Tvær milljónir króna er auðvitað klink og ingenting þegar líf barns er í húfi en kannski heldur mikið í lagt þegar barnið eyddi fjórum stundum á neyðardeild áður en það var útskrifað með lítilsháttar kúlu á enni.

Ofangreint dæmi kannski fullmikið af því góða en fullmikið af því góða er líka fín setning fyrir það ævintýralega okur sem bandarísk sjúkrahús heimta fyrir minnsta viðvik. Fimm þúsund kall fyrir heimsókn á bráðadeild Landspítalans kann einhverjum að þykja vel í lagt en er hundrað prósent brandari miðað við kostnað á bráðadeild í Bandaríkjunum.

Það er því full ástæða til að taka allar þær auka ferðatryggingar sem hugsast getur ef þú ætlar að dúllast vestanhafs um hríð. Ef þú þarft á læknisþjónustu að halda rúllar kostnaðurinn í milljónir króna á einu augnabliki.