Tíðindi

Flugfélögin fá engin verðlaun fyrir þjónustu

  05/04/2011nóvember 24th, 2014No Comments

Hvorki Icelandair né Iceland Express fá nein verðlaun fyrir þjónustu að mati lesenda Fararheill. Er það að fullu í stíl við þær umsagnir sem flugfélögin tvö fá frá erlendum viðskiptavinum sínum.

Í síðustu vefkönnun Fararheill var spurt hvort þjónusta flugfélaganna væri góð að mati lesenda. 73 prósent svarenda sögðu þjónustu flugfélaganna mjög upp og niður meðan 27 prósent sögðu flugfélögin ekki hafa hugmynd um hvað þjónustu væri. Enginn vildi meina að þjónustan almennt væri góð.

Þótt töluvert færri tækju þátt í þessari könnun en þeim fyrri, eða 174 einstaklingar, stemmir niðurstaðan við umsagnir um flugfélögin tvö á erlendum umsagnarmiðlum. Þá sérstaklega á vef Skytrax þar sem viðskiptavinir flugfélaga geta gefið umsagnir og einkunnir fyrir þjónustu flugfélaganna frá einum og upp í tíu.

Skemmst er frá að segja að Icelandair rétt slefar meðallag fyrir sína þjónustu og eru með 5,6 í einkunn þegar þetta er skrifað. Öllu verri útreið fær Iceland Express, eins og Fararheill hefur greint frá, en af tíu mögulegum er það flugfélag með heila 2,1 fyrir þjónustu sína.