Íslensku ferðaskrifstofurnar ætla seint að koma sér inn í nútímann. Nú eru sumarbæklingar þeirra að koma úr prentsmiðjunum og enn eitt árið miðast öll uppgefin verð við tvo fullorðna og tvö börn. Nema í þeim tilfellum sem verð miðast við tvo fullorðna og eitt barn. Og auðvitað ekki í þeim tilfellum þar sem verðið á aðeins við þegar tveir fullorðnir ferðast saman.
Svona lagað sést ekki oft hjá ferðaskrifstofum í Evrópu né heldur í Bandaríkjunum og alls ekki á ferðaskrifstofum á netinu. Þar finnast ekki lægstu verð og í smáa letrinu stendur „miðað við fjóra saman“ eða „miðað við að fjölskylda með eitt barn.“
Er enda hægt að færa rök fyrir að um ákveðið svindl sé að ræða þó Talsmaður neytenda fallist ekki á að um slíkt sé að ræða. Ritstjórn Fararheill man ekki eftir neinum öðrum geira þar sem auglýst verð miðast við fjölda þeirra sem kaupa viðkomandi vöru.
Viðskiptavinir gætu kannski sætt sig betur við þetta ef samræmi væri í auglýsingum. Ef allar ferðir væru til dæmis auglýstar miðað við fjölskyldu með eitt barn.
En allar ferðaskrifstofurnar haga seglum eftir vindi í þessu og þegar hentar birta þau verð miðað við fjóra og svo aftur miðað við tvo þegar það skilar hagstæðara verði.
Sérstaklega er þetta dapurlegt gagnvart þeim þúsundum einstæðra mæðra og feðra hérlendis sem þurfa ferðir fyrir einn fullorðinn og eitt barn eða tvö í mörgum tilfellum. Lágmarksverð miðast aldrei við þann hóp. Heldur miðast lágmarksverð aldrei við stakan einstakling sem er kannski eðlilegt sölutrix enda greiðir sá hópur alltaf dýrustu fargjöldin.
Dæmin eru mýmörg sem finna má í bæklingum ferðaskrifstofanna eins og sjá má að neðan.
Heimsferðir:
Netverð á mann m.v. 2 í smáhýsi þann 15. eða 16. mars i 7 eða 8 nætur
Úrval Útsýn:
Verð á mann m.v. 2 fullorðna og 1 barn í tvíbýli með hálfu fæði.
Sumarferðir:
Á mann miðað við 2 fullorðna og 2 börn í einu svefnherbergi.
Austfar:
Á mann miðað við fjóra fullorðna í 4 metra klefa






