Lágfargjaldaflugfélagið Ryanair auglýsir nú sértilboð í tvo daga á fargjöldum í mars og apríl og á lágmarksverðið að vera heilar 1.600 krónur. eða átta bresk pund.
Er þjóðráð að grípa slíkt sé hugmyndin að ferðast um eða yfir páskana á ódýran hátt frá Bretlandi. Eru miðar aðeins í boði á þessu verði fram til 24. febrúar.
Hafa skal þó í huga að flugfélagið er illræmt fyrir aukagjöld sín og fargjald upp á 1.600 krónur gæti auðveldlega rúllað í tíu þúsund krónur sé farangur með og greitt sé með kreditkorti.
Heimasíða Ryanair hér.






