Eftir dauða tuga manna í skærum í Líbíu finnst utanríkisráðuneytinu íslenska loks ástæða til að birta eins og eina ferðaviðvörun ef einhver skyldi þrátt fyrir allt vera á leiðinni til þessa Afríkuríkis.
Birti ráðuneytið fyrir stundu loks ferðaviðvörun en aðeins til Líbíu og telur ekki ástæðu til aðvarana vegna ferðalaga til annarra landa þar sem mótmæli gegn einræðisherrum fara í aukanna.
Tilkynning ráðuneytisins hér:
Utanríkisráðuneytið ræður Íslendingum frá ferðalögum til Líbíu vegna ótryggs ástands þar í landi. Ráðuneytið fylgist með þróun mála og ráðleggur fólki ennfremur að fylgjast með ferðaleiðbeiningum annarra ríkja t.d. Norðurlandanna.






