Tíðindi

Reglur um vökva í handfarangri áfram í gildi

  11/12/2010september 29th, 2014No Comments

Fregnir þær frá Evrópu þess efnis að verið sé að vinna að því að rýmka til muna það sem mörgum finnst óþægilegar og ónauðsynlegar takmarkanir við vökva í handfarangri eru ekki alveg réttar að sögn öryggisfulltrúa á Keflavíkurflugvelli.

Forvitnaðist Fararheill.is um það hvort til stæði að rýmka reglur hérlendis um að aðeins megi taka með sér 100 millilítra af vökva um borð í millilandaþotur en svo reynist ekki raunin.

Segir Stefán Thordersen hjá Leifsstöð að þær breytingar sem verði þýði að skiptifarþegum, þeim sem aðeins millilenda til að halda áfram för, er heimilt að hafa með sér vökva þó svo að hann sé ekki í 1. lítra poka (100 m.l. umbúðir) eða í innsiglispoka.

Sá vökvi skal þó sæta skimun samkvæmt ákveðnu hlutfalli en gallinn er sá að búnaður til skimunar vökva er ennþá mjög ófullkominn nema ef notast er við búnað þar sem tekið er sýnishorn af vökvanum og hann skimaður þannig. Með öðrum orðum þá þyrfti t.d. að opna góða flösku af kampavíni, taka sýnishorn og skima vökvann ef ná fram nákvæmri skoðun.

Það er því mat flestra flugvalla í Evrópu að á meðan ásættanlegur búnaður er ekki til staðar þá eigi annað hvort að viðhalda þeim reglum sem nú eru til staðar eða afleggja þeir alveg.