Yfir 80 prósent Íslendinga hafa ferðast erlendis það sem af er árs ef marka má tölur Ferðamálastofu. Til loka síðasta mánaðar höfðu 273 þúsund Íslendingar farið erlendis til einna eða annarra erindagjörða.
Er þetta mikið stökk frá fyrra ári þegar ferðalög erlendis voru í lágmarki en fyrstu ellefu mánuði þess árs ferðuðust 238 þúsund Íslendingar erlendis. Hafa þannig 35 þúsund fleiri lagt önnur lönd undir fót 2010 en 2009.






